EUVP

EUVP-áætlun Evrópusambandsins (European Union Visitors Program) veitir einstaklingum á aldrinum 25-45 ára í löndum utan ESB tækifæri til heimsækja stofnanir ESB í Brussel og Strassborg. Markmiðið er auka tengsl og gagnkvæma þekkingu á ESB og viðkomandi landi.

EUVP-áætlunin er fjármögnuð af Evrópuþinginu og framkvæmdastjórn ESB, sem í sameiningu sjá um framkvæmd heimsókna. Hver heimsókn stendur yfir í 5 til 8 daga og er sniðin að þörfum hvers og eins. ESB greiðir fyrir ferðir og uppihald.

Hverjir geta tekið þátt?

EUVP-heimsóknir eru ætlaðar einstaklingum á aldrinum 25-45 ára sem starfa í stjórnmálum, stjórnsýslu,  hjá fjölmiðlum, hagsmunasamtökum eða við fræðistörf.  Heimsóknirnar eru ekki ætlaðar námsfólki. Æskilegt er að umsækjendur hafi  háskólapróf og nokkurra ára starfsreynslu. Staðgóð þekkingu á ESB er kostur.

Umsóknir og val á umsækjendum

Vinsamlegast hafðu samband við sendinefndina ef þú hefur áhuga á að sækja um.

Sendinefnd ESB á Íslandi tilnefnir þátttakendur úr hópi umsækjenda en endanlegt val er í höndum nefndar undir forsæti fulltrúa frá Evrópuþinginu og framkvæmdastjórn ESB.