Árangursríkt Evrópusamstarf í 30 ár! - Grein birt í Morgunblaðinu
Í ár fögnum við 30 ára afmæli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Með þátttöku í EES-samstarfinu hlaut Ísland aðgang að sameiginlegum innri markaði Evrópusambandsins, sem er í dag stærsta efnahagssvæði heimsins sem samanstendur af 30 ríkjum og rúmlega 450 milljónum manns. Sameiginleg verg landsframleiðsla EES markaðarins telur 14,5 billjón evra sem eru nærri 20% af vergri landsframleiðslu á heimsvísu.Innan þessa sameiginlega markaðar okkar ríkir fjórfrelsið, þ.e. frjálst flæði á vörum, þjónustu, fjármunum og fólki, en í dag er einnig talað um að EES samningurinn hafi opnað á fimmta frelsið, frjálst flæði hugvitsins, þar sem samstarfsáætlanir Evrópusambandsins gegna lykilhlutverki.
Áætla má að flestir lesendur séu meðvitaðir um efnhags- og viðskiptahlið samningsins, enda hefur EES-samningurinn veitt fyrirtækjum og neytendum á Íslandi og í öðrum Evrópuríkjum aukin tækifæri til viðskipta og uppbyggingar í krafti sameiginlegra samkeppnisreglna, einsleitnismarkmiða og réttinda. En EES-samstarfið býður upp á meira en bara aukin viðskiptatækifæri og atvinnuuppbyggingu.
Ísland hefur frá upphafi verið virkur þátttakandi í helstu samstarfsáætlunum Evrópusambandsins á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar, starfrænnar innleiðingar, umhverfis- og loftlagsmála. Með hverri kynslóð nýrra ESB-áætlana hefur þátttaka Íslands vaxið að umfangi og hefur árangur þessa samstarfs einnig verið góður og talsvert yfir meðaltali allra þátttökuríkja. Hér viljum við nefna sérstaklega mennta- og rannsóknarsamstarf og lista- og menningarsamstarf sem dæmi um árangursríkt EES-samstarf.
Mennta- og rannsóknarsamstarf milli Íslands og ESB hefur verið einstaklega árangursríkt. Vel yfir fjörutíu þúsund Íslendingar, rúmlega 10% þjóðarinnar, hafa tekið beinan þátt í evrópsku samstarfi og þá helst með stuðningi frá Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlun ESB, sem er líklega best þekkta samstarfsáætlunin á Íslandi. Talsvert fleiri ríkisborgarar ESB-ríkja hafa komið til Íslands til þess að stunda tímabundið nám, rannsóknir og nýsköpun. Nær allar háskólastofnanir á Íslandi taka virkan þátt í rannsóknar- og nýsköpunaráætlun ESB sem nefnist Horizon Europe sem hefur haft jákvæð áhrif á gæði náms og rannsókna háskólanna. Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn og Háskólinn í Reykjavík taka einnig þátt í Evrópsku samstarfsneti háskóla þar sem háskólarnir deila gögnum, stunda sameiginlegar rannsóknir, bjóða upp á kennara og nemendaskipti og margt fleira. Einnig er vert að fagna sérlega góðri þátttöku íslenskra grunn- og menntaskóla í evrópuverkefnum, bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Það er kannski ekki að undra, enda veitir samstarfið nemendum, rannsakendum og kennurum jákvæða upplifun, nýja innsýn, eykur víðsýni og menningarlæsi.
Menningartengsl Íslands og ESB hafa vaxið og dafnað þökk sé EES-samningsins. Ísland er þekkt um alla Evrópu fyrir að vera sérlega afkastamikið samfélag þegar kemur að skapandi greinum, hvort sem um bókmenntir, sviðslist, tónlist, myndlist eða kvikmyndagerð að ræða. Á seinustu áratugum hefur íslenskt listafólk notið fádæma velgengni í samkeppni um evrópustyrki úr Creative Europe kvikmynda- og menningaráætlun Evrópusambandsins. Styrkjum þessum er ætlað að efla samstarf meðal skapandi greina Evrópu og veita Evrópubúum, þar á meðal Íslendingum, tækifæri að njóta fjölbreytileikans sem evrópskar skapandi greinar fela í sér. Sem dæmi um það hafa milljónir manns víða um Evrópu notið þess að sjá íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsefni, enda hefur varla verið gerð kvikmynd eða sjónvarpssería á Íslandi sl. áratug án einhvers stuðnings frá Creative Europe áætluninni. Einnig hefur fjöldi íslensks listafólks hlotið styrki til þess að ferðast, vinna að og setja upp verk sín og fjöldi listahátíða á Íslandi hlotið styrki með tilheyrandi eflingu á menningarlífi um land allt.
Ljóst er að EES-samningurinn heldur áfram að þróast og samstarf Íslands og ESB-ríkja heldur áfram að breikka og dýpka. Í grunninn byggir EES-samstarfið á sameiginlegum gildum og hugsjónum Íslands og ESB, þ.e.a.s lýðræði, mannréttindi, frjáls viðskipti, og að bera virðingu fyrir alþjóðalögum og réttarríkinu. Saman hefur okkur tekist að byggja upp farsælt og árangursríkt samstarf og það er tilhlökkunarefni að sjá hvernig samstarfið á eftir að þróast áfram.
Á miðvikudaginn 8.maí milli 14 og 18 mun forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opna sérstaka afmælishátíð í tilefni af 30 ára Evrópusamstarfi. Gestum og gangandi gefst kostur á að ganga á milli 40 bása og kynna sér afrakstur fjölda evrópskra samstarfsverkefna, fá sér köku og kaffi og njóta skemmtiatriða. Einnig verður fjöldi sendiráða ESB-ríkja með bása og geta gestir fræðst meira um ríkin og jafnvel kynnst matarmenningu þeirra á staðnum! Tilvalið fyrir fjölskyldur!
30 ára afmælishátíðin er skipulögð af Rannís, utanríkisráðuneytinu, háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneytinu, og Sendinefnd ESB á Íslandi.
Hlökkum til að sjá ykkur í Kolaportinu þann 8. maí milli 14 og 18.
Höfundar:
Lucie Samcová-Hall Allen, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís