Árlegur fundur sendiherra ESB ríkja gagnvart Íslandi og forsætisráðherra Íslands

Gagnlegar og upplýsandi umræður fóru fram í Safnahúsinu þar sem Kristrún Frostadóttir ræddi við sendiherra um nýjustu vendingar í innlendum og alþjóðlegum stjórnmálum.

Árlegur fundur sendiherra aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart Íslandi fór fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu þann 16. júní 2026. Forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, var heiðursgestur fundarins sem var skipulagður af sendinefndinni.

Á fundinum ræddu sendiherrarnir við forsætisráðherra um nýlegar vendingar í íslenskum stjórnmálum sem og um alþjóða- og Evrópumál.

Sendinefnd ESB þakkar Kristrún Frostadóttir kærlega fyrir komuna og fyrir gagnlegar og upplýsandi umræður.