Þórhildur Kristbjörnsdóttir ráðin til sendinefndar Evrópusambandsins

Sendinefnd Evrópusambandsins býður Þórhildi Kristbjörnsdóttur velkomna til starfa, en hún hóf nýlega störf sem starfsnemi við stjórnmála- og upplýsingadeild sendinefndarinnar. 

 

Þórhildur Kristbjörnsdóttir er útskrifuð frá Leiden University með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum með sérstaka áherslu á átakafræði og alþjóðadeilur í nútímasamfélagi. Í gegnum námið stundaði hún rannsóknir á ýmsum málefnum tengdum alþjóðasamskiptum og hegðun einræðisríkja á alþjóðavettvangi.

Þar áður kláraði Þórhildur BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, en hún lauk einnig skiptinámi við Norska vísinda- og tækniháskólann í Þrándheimi, Noregi. Samhliða grunnnámi sínu sat Þórhildur í ritstjórn "Íslensku leiðarinnar" (sem í dag heitir "Póllinn"), tímarits Politica- félags stjórnmálafræðinema við HÍ.

Vertu velkomin til starfa!