Clara Ganslandt nýr sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
© Office of the Presiden tof Iceland, 2024
Clara Ganslandt, hefur afhent forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum og tekið formlega við stöðu sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi.
Sendiherrann ræddi við forseta um samskipti Íslands og Evrópusambandsins og þá sérstaklega mikilvægi EES-samningsins og samstarfsverkefna á milli Íslands og Evrópusambandsins, en rúmlega 10% íslensku þjóðarinnar hafa nýtt sér styrki fjármagnaða af Evrópusambandinu t.a.m. Erasmus+ and Creative Europe styrki.
Að lokinni afhendingu trúnaðarbréfs forseta hlaut starfsfólk Sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi tækifæri til þess að heilsa forseta.
Office of the President of Iceland, 2024