EES EFTA ríkin á fundi leiðtogaráðs ESB

Leiðtogaráðsfundur ESB var haldinn dagana 21. og 22. mars 2024. Í tilefni 30 ára afmælis EES-samningsins var forsætisráðherrum EES EFTA ríkjanna þriggja, Íslandi, Noreg og Liechtenstein, boðin þátttaka.

 

Leiðtogaráðsfundur ESB (e. European Council) var haldinn dagana 21. og 22. mars 2024 (sjá dagskrá) þar sem forsætisráðherrar aðildarríkjanna móta saman stefnu Sambandsins ásamt Charles Michel, forseta Leiðtogaráðsins. Í tilefni 30 ára afmælis EES-samningsins var seinni dagur fundarins tileinkaður EES-samstarfinu og af því tilefni sóttu forsætisráðherrar Íslands, Noregs og Liechtenstein einnig fundinn.

Samningurinn markaði tímamót í samstarfi Íslands og Evrópusambandsins og festi í sessi frjálst flæði fólks, fjármagns, vara og þjónustu milli Íslands og annarra aðildarríkja samningsins (sjá upplýsingamyndband). Samningurinn hefur einni skapað Íslendingum fjölmörg tækifæri til að stunda nám, vinnu og viðskipti í aðildarríkjum sambandsins og öfugt, en fjölmargir íbúar aðildarríkjanna hafa komið til Íslands í sömu erindagjörðum.

Á fundinum var rætt um mikilvægi EES-samningsins og samstarf ríkjanna þriggja við ESB sem og þær áskoranir og tækifæri sem ríkin standa frammi fyrir. Í ræðu sinni minntist Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á efnahagslegar og félagslegar umbætur sem hefðu átt sér stað með tilkomu samningsins og mikilvægi þess að vinna saman m.a. í heilbrigðis og loftslagsmálum. Þá kallaði Katrín einnig eftir samstöðu ríkjanna í lýðræðis-, jafnréttis- og mannréttindamálum.

Video file

Video file

 

EU rådets president med EØS ledere