ESB–Ísland: Sameiginleg fréttatilkynning um undirritun yfirlýsingar um samstarf um öryggis- og varnarmál

Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, Kaja Kallas, og utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, undirrituðu í dag samstarfssamning ESB og Íslands um öryggis- og varnarmál sem færir samstarf þeirra á sviði öryggis og varna á nýtt stig.

Hið nýja samstarf um öryggis- og varnarmál styrkir enn frekar náið samstarf ESB og Íslands og mun stuðla að öryggi og velsæld beggja aðila.

Samstarfið byggir á sameiginlegum gildum og hagsmunum í utanríkis- og öryggismálum og veitir sérsniðinn ramma til að efla samskipti um svæðisbundin öryggismál og styrkja samvinnu á sviðum á borð við stuðning við Úkraínu, málefni norðurslóða og öryggi á hafi, netöryggi, tækninýjungar, efnahagslegt öryggi og tengsl loftslagsbreytinga og öryggis.

Samstarfið um öryggis- og varnarmál mun byggja á röð samtals- og samráðsferla sem auðvelda gagnkvæma upplýsingamiðlun og veita leiðsögn og eftirlit, meðal annars með árlegum samráðsvettvangi um öryggis- og varnarmál.

Í óstöðugu öryggisumhverfi samtímans markar þessi mikilvægi áfangi nýjan drifkraft í þegar nánu samstarfi ESB og Íslands, sem byggir á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.