ESB styrkir samstarf við Ísland og Noreg með áætlun um örugg fjarskipti
Evrópusambandið hefur undirritað samning við Ísland og Noreg sem gerir báðum ríkjum kleift að taka þátt í fjarskiptakerfi opinberra aðila, GOVSATCOM og áætlun um öruggt fjarskiptakerfi um gervihnetti, IRIS². Samningurinn undirstrikar skuldbindingu ESB til aukins samstarfs við þessi lönd.
Öruggar og órofnar gervihnattatengingar sem sem hægt er að setja hratt eru lykilatriði fyrir öryggi, viðnámsþrótt og viðbrögð við neyðarástandi, sérstaklega á afskekktum svæðum. Þar sem innviðir eru takmarkaðir veita þessi kerfi áreiðanlega tengingu fyrir stjórnvöld og neyðarþjónustu, vernda viðkvæmar upplýsingar og tryggja örugga og loft- og siglingaleiðsögn.
GOVSATCOM-kerfi ESB, sem hefur verið starfrækt frá janúar 2026, ásamt áætluninni um öruggt fjarskiptakerfi, mun enn frekar efla getu Íslands og Noregs á sviðum á borð við krísustjórnun, örugga stjórnsýslu, viðbrögð við náttúruhamförum, loftslagsvöktun og umhverfisvernd. Bættar tenginarg er einnig taldar gagnast afskekktum samfélögum, meðal annars með bættu aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
Samningurinn var undirritaður af Stefáni Hauki Jóhannessyni, sendiherra Íslands gagnvart ESB, Andrius Kubilius, framkvæmdastjóra varnarmála og geimmála fyrir hönd ESB, og Cecilie Myrseth, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs.
Samningurinn markar enn eitt skref í átt að aukinni samvinnu við lykilsamstarfsaðila.
Þátttaka Íslands og Noregs í þessum áætlunum og aðgangur að tengdri þjónustu mun styrkja fjarskiptatengingar ríkjanna. Jafnframt mun þátttakan efla hlutverk ESB á alþjóðavettvangi og styðja við alþjóðlegt samstarf í samræmi við geimstefnu Evrópu.
„Aðgangur að bæði GOVSATCOM og IRIS² mun styrkja viðbrögð Íslands og Noregs við öryggis- og efnahagslegum áskorunum og jafnframt styrkja alþjóðlega stöðu Evrópu,“ sagði Andrius Kubilius, framkvæmdastjóri varnarmála og geimsviðs.
„Samningurinn markar mikilvægt skref í átt að því að færa Noreg nær starfi ESB á sviði öryggis, viðnámsþróttar og tæknilegs sjálfstæðis í geimnum. Noregur býr yfir öflugum innviðum og tækni á sviði geimstarfsemi. Við lifum á óvissutímum þar sem þörfin fyrir sjálfstæði Evrópu fer sívaxandi. Því er mikilvægt að við vinnum saman þegar ESB þróar nýjar geimáætlanir,“ sagði viðskipta- og iðnaðarráðherra Cecilie Myrseth.
„Þátttaka okkar í áætlunum um örugg fjarskipti og GOVSATCOM mun stuðla að auknu öryggi og viðnámsþrótti í samskiptum okkar við umheiminn. Fyrir Ísland er þetta afar mikilvægt og sýnir skýrt ávinninginn af nánara samstarfi við ESB á þessu sviði,“ sagði Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart ESB.