Langar þig að upplifa Evrópu á einum degi með fjölskyldunni?

Komdu og fagnaðu Evrópudeginum með okkur í Norræna Húsinu laugardaginn milli 11:00 og 14:00.

Þemað í ár er: Okkar Evrópa, okkar framtíð. Á þessum degi fögnum við menningarlegri fjölbreytni og unga fólkinu.

Þetta verður dagur þar sem fjölskyldur, vinir og nágrannar koma saman til þess að njóta þess besta sem Evrópa hefur upp á að bjóða.

Í boði verður fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa. Þar má nefna andlitsmálningu, leiki og föndur fyrir börnin. 

Að auki verður tækifæri til þess að heimsækja bása fjölda meðlimaríkja Evrópusambandsins þar sem hægt verður að kynnast einstökum hefðum þeirra, bragðheimi og sögum. Þá munu gestir fá að njóta lifandi tónlistar allan daginn.

Komdu við og gerum Evrópudaginn eftirminnilegan saman!

 

Sjá viðburðinn hér: https://fb.me/e/3Tvb4Jkoj