Framkvæmdastjóri Frontex heimsækir Ísland

Hans Leijtens, framkvæmdastjóri Frontex, var í Reykjavík í vikunni. Í heimsókn sinni sat framkvæmdastjórinn ýmsa fundi með dómsmálaráðherra sem og með sendiherrum aðildarríkja Evrópusambandsins ásamt sendiherra Noregs. Framtíð Frontex samstarfsins var rædd sem og samstarf Íslands og Evrópusambandsins í landamæra- og strandgæslu.

 

Hans Leijtens, framkvæmdastjóri Frontex, evrópsku landamæra- og strandgæslustofnunarinnar, var á Íslandi í vikunni til þess að funda með dómsmálaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, alþingismönnum, sem og fulltrúum Ríkislögreglustjóra. 

Einnig átti hann fund með sendiherrum aðildarríkja Evrópusambandsins ásamt sendiherra Noregi. 

Á fundinum var framtíð Frontex rædd, en frá stofnun hennar árið 2004 hefur hlutverk og ábyrgð hennar í að stjórna og tryggja öryggi sameiginlegra ytri landamæra Schengen svæðisins aukist mikið. Ísland tekur virkan og mikilvægan þátt í Schengen og Frontex samstarfinu, t.a.m með því að sinna eftirlitsflugi og styðja við lögreglusamstarf.

Áhugasamir geta kynnt sér grein Jóns Péturs Jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra og fulltrúa Íslands í stjórnarborði Frontex, og Írisar Bjargar Kristjánsdóttur, sviðsstjóra alþjóða- og landamærasviðs ríkislögreglustjóra og varamanns í stjórnarborði Frontex, sem birt var fyrir tveimur dögum um mikilvægi evrópusamstarfs (og alþjóðlegsamstarfs) til að tryggja örugg landamæri Schengen samstarfsins: Sjá HÉR

picture of people sitting by a large table