Heimsókn til FAB LAB Reykjavík
Þriðjudaginn 30 maí 2023 heimsótti sendiherra Evrópusambandsins, Lucie Samcová-Hall Allen, FAB LAB Reykjavík og spjallaði við forstöðukonu Fab Lab Reykjavíkur, Þóru Óskarsdóttir, Bryndísi Steinu Friðgeirsdóttir, sérfræðing, og tæknifulltrúa Fab Lab Reykjavíkur, Arnar Daða Þórisson, Hafey Viktoríu Hallgrímsdóttur, Andra Sæmundsson og Magnús Pétursson.
Í heimsókn sinni og hlaut sendiherrann kynningu á starfsemi Fab Lab Reykjavík, áhugaverðum samstarfsverkefnum þess og fjárhagsstuðning Evrópusambandsins í gegnum ERASMUS+ áætlunina til sumra verkefna Fab Lab Reykjavíkur, t.d Cocoon verkefnið og FABLABs - new technologies partnership verkefnið. Þar að auki lærði sendiherrann um markmið Fab Lab Reykjavík að efla nýsköpun í íslensku samfélagi, efla nýsköpun í menntun, styðja við vöruþróun fyrirtækja og hlúa að nýjum hugmyndum hjá fólki á öllum stigum samfélagsins.
Sendiherrann fékk að skoða verkstæðið og sjá öll þau tól og græjur sem Fab Lab býður notendum sínum upp á, til að mynda þrívíddarprentara, geislaskera, vínylskera, fræsara, tölvur, textílvörur, aðgang að nytsamlegum forritum, og sérstakt rafeindasvæði.
Fab Lab Reykjavík - sem er hluti af Fab Lab Ísland - var opnað 24. janúar 2014 og er staðsett í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. Síðan þá hefur Fab Lab verið skapandi miðstöð Breiðholts og myndar skapandi og hvetjandi samfélag fyrir fjölbreyttan hóp fólks til að þróa nýsköpundarhumgyndir sínar og efla tæknilæsi. Meira en 8,000 manns heimsækja Fab Lab Reykjavík árlega.
Gaman er að geta þess að íslenska nýsköpunarverkefnið SideWind bjó til frumgerðina sína hjá Fab Lab Reykjvík. Evrópusambandið styrkti evrópska samstarfsverkefnið WHISPER um 1,3 milljarða íslenskra króna, en WHISPER samstarfsverkefnið leggur áherslu á að áframþróa tækni íslenska nýsköpunarverkefnisins SideWind.
Hægt er að lesa meira um SideWind og Whisper hér: https://europa.eu/!HqdgbX
Evrópusambandið styður við Fab Lab tengslanetið og mörg verkefni þess víðsvegar um Evrópu í gegnum Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins.