Hringborð norðurslóða 2023

Árlega ráðstefnan "Hringborð norðurslóða" átti sér stað í Reykjavík dagana 19. til 21. október. Fulltrúar Evrópusambandsins voru: sérstakur erindreki ESB í málefnum norðurslóða, Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, Lucie Samcová-Hall Allen, og sérfræðingar Stjórnarskrifstofu ESB í sjávarútvegsmálum (DG MARE).

Árlega ráðstefnan "Hringborð norðurslóða" átti sér stað í Reykjavík dagana 19. til 21. október og, líkt og vanalega, tóku fulltrúar Evrópusambandsins virkan þátt í ráðstefnunni og tengdum viðburðum og umræðum. Fulltrúar Evrópusambandsins voru: sérstakur erindreki ESB í málefnum norðurslóða, Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, Lucie Samcová-Hall Allen, og sérfræðingar Stjórnarskrifstofu ESB í sjávarútvegsmálum (DG MARE), Miguel Roncero og Vassilis Dokalis.

Á ráðstefnunni hélt ESB þrjár panel-umræður um málefni ungs fólks á norðurslóðum, jafnrétti kynjanna og málefni hinsegin fólks, sem og um mikilvægi stefna og fjárveitinga ESB á norðurslóðum.

Harpa var troðfull af fólki en yfir 2 000 manns sóttu ráðstefnuna í ár. Við hlökkum til að taka aftur þátt og vinna að aukinni náttúruvernd, sjálfbærri uppbyggingu og grænum orkuskiptum.

Kynnið ykkur frekar stefnur ESB hvað varðar norðurslóðir: https://www.eeas.europa.eu/eeas/eu-arctic_en