Hringborð Norðurslóða 2026

Jozef Síkela, framkvæmdastjóri alþjóðasamstarfs Evrópusambandsins, sótti ráðstefnu Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle) í ár, en hann heimsótti Ísland dagana 7.–8. október.

Auk þess að sækja ráðstefnuna tók framkvæmdastjórinn Síkela þátt í fjölda funda og viðburða sem miðuðu að því að efla þátttöku og samstarf ESB á norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi, þar á meðal með utanríkisráðherrum Íslands og Kanada, og lögmanni Færeyja. Framkvæmdastjórinn átti einnig fund með fulltrúum ungs fólks á norðurslóðum til að hlusta á sjónarmið þeirra og skoða hvernig ESB getur átt í betri samskiptum við ungt fólk sem býr á norðurslóðum, aukið vitund um þau tækifæri sem standa til boða í gegnum samstarf við ESB og stutt við bakið á þeim þegar þau stíga sín fyrstu skref út í fullorðinsárin.

Framkvæmdastjórinn Síkela tók þátt í allsherjarfundi ráðstefnunnar, þar sem hann lagði áherslu á fimm helstu forgangsmál fyrir svæðið í ræðu sinni: 

🔹 Að fjárfesta á norðurslóðum með þeim hætti sem kemur íbúum þar til góða 

🔹 Að móta framtíðarsýn fyrir norðlæg grannsvæði 

🔹 Að efla öryggi og seiglu í samstarfi við líkt þenkjandi bandamenn 

🔹 Að stuðla að sjálfbærri þróun í gegnum Global Gateway-framtak ESB 

🔹 Að flýta aðgerðum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum

Í ljósi vaxandi geopólitískrar spennu á norðurslóðum, í Evrópu og víðar, lagði framkvæmdastjórinn áherslu á mikilvægi nánara samstarfs milli ESB og ríkja á norðurslóðum til að byggja upp öruggari, seigari og sjálfbærari framtíð fyrir svæðið.