Lenya Rún valin í EUVP 2024
Lenya Rún Taha Karim, varaþingkona Pírata, sótti Sendinefndina heim í morgun og átti ánægjulegt spjall við sendiherra ESB, Lucie Samcová - Hall Allen, um þátttöku sína í EUVP 2024 námsáætluninni árið 2024.
EUVP 2024 er námsáætlun Evrópusambandsins sem nýtur mikillar virðingar og vinsældar um heim allan. Námsáætlunin er ætluð öflugu ungu og sérhæfðu fólki frá ríkjum utan Sambandsins til þess að fara í sérsniðnar fræðsluferðir til Brussel og Strassborgar til þess að fræðast betur um stofnanir ESB, Evrópuþingið og Evrópusamvinnu. Í fræðsluferðinni gefst þátttakendum tækifæri að hitta Evrópuþingmenn, sérfræðinga, embættismenn, og aðra hagsmunaaðila í samræmi við óskir og sérhæfingu þátttakenda EUVP.
Við hlökkum til að fylgjast með Lenyu Rún í námsferð sinni og óskum henni hjartanlega til hamingju með að hafa verið valin til þess að taka þátt í EUVP árið 2024.
Nánair upplýsingar um EUVP námsáætlunina má finna á https://visitors-programme.europa.eu/