Málþing um einföldun evrópsks regluverks

Málþingið fór fram í Háskólanum í Reykjavík þar sem rætt var um straumlínulögun regluverks og minnkun stjórnsýslubyrði innan EES.

Þann 10. febrúar stóðum við fyrir málþingi í Háskólanum í Reykjavík, í samstarfi við Félag atvinnurekenda og hóp sérfræðinga, þar sem umfjöllunarefnið var einföldun evrópsks regluverks. Í ljósi nýrra áherslna framkvæmdastjórnar ESB beindist umræðan að því hvernig megi umbreyta regluverkinu í tæki sem styður við bakið á fyrirtækjum á EES-svæðinu í stað þess að hamla þeim.

Það var okkur mikill heiður að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, opnaði viðburðinn og lagði áherslu á nauðsyn þess að skapa straumlínulagaðra og samstæðara reglunahverfi. Því næst flutti Michael Wimmer (fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB) aðalerindi þar sem hann kynnti vegvísi að því að minnka stjórnsýslubyrði lítilla og meðalstórra fyrirtækja um 35% fyrir árið 2029. Þátttakendur í pallborðsumræðum frá ESA, Háskólanum í Reykjavík og einkageiranum ræddu frekar hvernig tryggja mætti að þessar umbætur nýtist íslensku atvinnulífi með skjótum og fyrirsjáanlegum hætti.

Kærar þakkir fá meðgestgjafar okkar — utanríkisráðuneytið, ESA, Félag atvinnurekenda og Háskólinn í Reykjavík. Það voru yfir 130 þátttakendur á staðnum og í streymi.

Fyrir þau ykkar sem komust ekki er hægt að nálgast upptöku af málþinginu hér:  https://atvinnurekendur.is/malthing-10-februar-um-einfoldun-evropuregluverks-a-simple-message-from-brussels/?fbclid=IwY2xjawQSb-pleHRuA2FlbQIxMABicmlkETJSaDd2V2RkUGZGRFpIekw1c3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHmWSbgq0NTqIpfk76ci6o2wA-kiGEV3Rtb7eESL6_RMVOIBvqdIOAseNT-26_aem_KAt7cQ_ceIkEeR3kusykiw