María Elísabet hlýtur sérstaka viðurkenningu fyrir Sápufuglinn

Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2024 voru afhent á sérstakri verðlaunaathöfn í Brussel í gær, en 13 rithöfundar voru tilnefndir til verðlaunanna í ár. Bókmenntaverðlaunum ESB er ætlað að vekja athygli á hinum mikla fjölbreytileika sem einkennir evrópskar bókmenntir sem og viðurkenna upprennandi rithöfunda frá 40 þátttökuríkjum Creative Europe, menningaráætlunar Evrópusambandsins. Ísland er meðal þátttökuríkja Creative Europe menningaráætlunarinnar.
Danski rithöfundurinn Theis Ørntoft hreppti hnossið í ár og er handhafi bókmenntaverðlauna ESB 2024. Íslenski rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir hlaut sérstaka viðurkenningu frá stjórn bókmenntaverðlaunna fyrir bókina sína Sápufuglinn.
Sendinefnd ESB óskar Maríu Elísabetu til hamingju með sérstöku viðurkenninguna.
Dómnefnd samanstóð af 7 bókmenntasérfræðingum
Verðlaunahafi og sérstakar viðurkenningar:
Danmörk: Theis Ørntoft, Jordisk, útgefandi: Gyldendal
Búlgaría: Todor Todorov, Хагабула, útgefandi: Janet 45
Þýskaland: Deniz Utlu, Vaters Meer, útgefandi: Suhrkamp
Ísland: María Elísabet Bragadóttir, Sápufuglinn, útgefandi: Una útgáfuhús
Holland: Sholeh Rezazadeh, Ik ken een berg die op me wacht, útgefandi: Ambo|Anthos
Slóvenía: Tina Vrščaj, Na klancu, útgefandi: Cankarjeva založba
Öll verkin sem hlutu tilnefningar í ár endurspegla þann mikla fjölbreytileika sem einkennir evrópskar bókmenntir. Við hjá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins erum stolt af því að geta stutt við bókmenntaverðlaun sem aðstoða við að tengja okkar hæfileikaríku rithöfunda við lesendur víðsvegar um heiminn í gegnum þýðendur og kynningarátök. Fögnum fjölbreytileika evrópskra bókmennta!
- Iliana Ivanoa, Framkvæmdastjóri nýsköpunar-, vísinda-, menningar-, menntunar- og æskulýðsmála hjá ESB.
Nú hefur dómnefnd komist að niðurstöðu. Við óskum Theirs Ørntoft og öllum þeim sem hlutu sérstaka viðurkenningu hjartanlega til hamingju. Allir sem hafa verið tilnefndir til verðlaunanna í ár hljóta einstakt tækifæri til þess að ná til stærri hóps lesenda og njóta aukins sýnileika. Ég hvet ykkur öll til þess að nýta þessi tækifæri vel og koma verkum ykkar í þýðingu á næstu mánuðum.
- Ricardo Franco Levi, Forseti FEP, Samband evrópskra bókaútgefendaÉg óska Theis Ørntoft til hamingju með að hafa hlotið Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins ársins 2024. Einnig vil ég óska þeim fimm rithöfundum sem hlutu sérstakar viðurkenningar í ár. Verk ykkar koma til með að styrkja enn frekar hlutverk og mikilvægi bókmenntaverðlaunanna sem einskonar sendiherra fjölbreytileika evrópskra bókmennta, en bókmenntaverðlaunin leggja áherslu á boðskap umburðarlyndis og gagnkvæms skilnings. Ég vona að bækur þessar hljóti allar þær viðurkenningar sem þær eiga skilið í bókabúðum um alla Evrópu og víðar, og að þær leggi sitt af mörkum til að skapa tengsl milli ólíkra landsvæða og menningarheima.
- Jean Luc Treutenaere, meðforseti Sambands evrópskra og alþjóðlegra bóksala.