Melkorka and Emma Ósk nýir starfsnemar hjá Sendinefnd ESB á Íslandi

Það gleður okkur að kynna Melkorku Kjartansdóttur og Emmu Ósk Ragnarsdóttur til leiks en þær hafa nýlega tekið til starfa sem nýjir starfsnemar Sendinefndarinnar.

Það gleður okkur að kynna Melkorku Kjartansdóttur og Emmu Ósk Ragnarsdóttur til leiks en þær hafa nýlega tekið til starfa sem nýjir starfsnemar Sendinefndarinnar. Melkorka og Emma Ósk koma til með að starfa fyrir Sendinefndina næstu 6 mánuði.

Melkorka Kjartansdóttir er útskrifuð með L.L.B í Evrópurétti frá háskólanum í Maastricht þar sem hún lagði sérstaka áherslu á evrópska mannréttindalöggjöf og hælisleitendakerfi ESB. Einnig lauk hún skiptinámi við Universidad Carlos III í Madrid. Eftir útskrift starfaði Melkorka hjá Umboðsmanni Alþingis. Þar að auki hefur hún tekið virkan þátt í félags- og sjálfboðastörfum sem tengjast mannréttinda- og umhverfismál en hún gegndi stöðu formanns nemendafélags Amnesty International hjá háskólanum í Maastricht.

Vertu velkomin Melkorka!

Emma Ósk Ragnarsdóttir er útskrifuð með BA í stjórnmálafræði og viðbótardiplómu á meistarastigi í Opinberri stjórnsýslu. Samhliða því er hún einnig að klára viðbótardiplómu á meistarastigi í Uppeldis- og menntunarfræði þar sem áherslusvið hennar er samfélag og fjölmenning. Emma hefur tekið virkan þátt í stjórnmálastarfi hér á landi, meðal annars með þátttöku í kosningaherferðum og setu í mismunandi stjórnum innan stjórnmálaflokks. Emma hefur einnig sinnt ýmis félagsstörfum, þar á meðal að sitja í stjórn Evrópska Ungmennaþingsins á Íslandi samhliða BA náminu. Emma hefur unnið mikið í kringum málefni flóttafólks, fjölmenningu og menntunar og brennur fyrir þeim málefnum, sem og að vekja frekari athygli á mikilvægi þeirra tengsla sem Ísland hefur við Evrópu.

Vertu velkomin Emma Ósk!

Við þökkum Hjalta Birni og Renötu Birnu, fyrrum starfsnemum okkar, fyrir góð störf og óskum þeim velfarnaðar í framtíðarverkefnum þeirra.