Ríkislögreglustjóri fundar með sendiherrum ESB ríkja

Þriðjudaginn 18 apríl 2023 fundaði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, með sendiherrum aðildarríkja Evrópusambandsins í húsakynnum Sendinefndar ESB í Reykjavík.

 

 

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, var gestur á mánaðarlegum fundi sendiherra aðildarríkja ESB í húsakynnum Sendinefndar ESB á þriðjudaginn 18 Apríl 2023. 

Ríkislögreglustjóri upplýsti sendiherrana um undirbúning íslenskra stjórnvalda fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík milli 16. og 17. maí næstkomandi.

Ríkislögreglustjóri ræddi einnig mikilvægi lögreglusamstarfs innan Evrópu og náins samstarfs milli íslenskra lögregluyfirvalda og evrópskra stofnana á borð við Frontex og Europol.

Sendinefnd ESB þakkar Sigríði Björku Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra, og teymi hennar fyrir ánægjulegt og fróðlegt samtal.