Sendinefnd ESB þakkar Leonie fyrir góð störf.

Leonie Mädje lauk nýlega störfum sem starfsnemi og Sendinefndin þakkar henni fyrir góð störf.

 

Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi þakkar Leonie Mädje fyrir frábær störf, en Leonie lauk nýlega störfum sem starfsnemi í Stjórnmála- og upplýsingadeild Sendinefndarinnar.

Sem starfsnemi sá Leonie um málefnum sem sneru m.a að málefnum Norðurslóða, styrkveitingum úr nýsköpunar- og rannsóknarsjóðum ESB til verkefna á landsbyggðinni, EES-samstarfinu,  samfélagsmiðlum og vann einnig að skipulagningu viðburða, o.fl.

Leonie hefur verið ómetanlegur starfskraftur og Sendinefndin óskar henni alls hins besta í framtíðarverkefnum sínum.