Sendinefnd ESB tók þátt í Nýsköpunarvikunni
Tveir viðburðir stóðu helst upp úr eftir vikuna. Sá fyrri var hliðarviðburðurinn okkar „Harder, Better, Funded, Stronger,“ sem við héldum í samvinnu við RANNÍS þann 28. apríl. Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, opnaði viðburðinn fyrir fullu húsi og ræddi hvernig íslensk nýsköpun gegnir stóru hlutverki í evrópsku samhengi. Einnig ræddi hún mikilvægi þess að styrkja þessi tengsl enn frekar, meðal annars í gegnum þær fjölmörgu áætlanir ESB sem Ísland tekur þátt í.
Annar hápunkturinn var þegar Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, tók þátt í pallborðsumræðum 29. apríl undir yfirskriftinni „hvernig smáar þjóðir takast á við aukna athygli“ ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fyrrum utanríkisráðherra og Ellert Arnarsyni, fjármálastjóra Amaroq. Umræðunum stýrði Runno Allikivi.
Í umræðunum var sjónum beint að sívaxandi geopólitísku mikilvægi Norðurslóða, því hvernig Ísland og Grænland takast á við tækifæri og tækifæri sem fylgja aukinni alþjóðlegri athygli og skuldbindingu ESB til að efla áframhaldandi samstarf.
Eins og sendiherrann benti á: „ESB hefur átt í langvarandi samstarfi við ríki á Norðurslóðum og mikilvægi þess hefur aukist enn frekar í ljósi nýlegra vendinga í alþjóðamálum og loftslagsbreytinga.“