Sendinefndin ásamt samstarfsaðilum gróðursetur 1000 tré
© © European Union, 2026
Sendinefnd ESB skipulagði nýlega vel heppnaða trjáplöntun í Heiðmörk í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur. Nýtt var tækifærið á fallegum haustdegi og leiddi verkefnið saman fulltrúa frá sendiráðum Danmerkur, Finnlands, Frakklands, Noregs, Póllands, Spánar og Svíþjóðar, auk Náttúruverndarsamtaka Íslands. Saman gróðursetti hópurinn tæplega 1.000 tré. Þetta er í þriðja sinn sem sendinefndin stendur fyrir trjáplöntun í Heiðmörk og færum við Skógræktarfélagi Reykjavíkur okkar innilegustu þakkir fyrir frábært samstarf.