Silfurberg virkjun Carbfix formlega opnuð á Hellisheiði: verkefnið hlaut 560 milljón króna fjármögnun frá ESB

Silfurberg virkjun Carbfix við Hellisheiðarvirkjun var formlega opnuð fimmtudaginn 19. júní 2025 af Jóhanni Páli Jóhannssyni, orku- umhverfis- og loftslagsráðherra.
Silfurberg verkefnið var meðal fyrstu styrkþega úr Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins, en Carbfix undirritaði styrktarsamning upp á 3,9 milljónir evra árið 2020, eða tæpar 560 milljónir króna.
Silfurberg er nýstárlegt verkefni sem beitir CO2 föngun, niðurdælingu og bindingu í berg í jarðvarmavirkjun Orku náttúrunnar. Verkefnið miðar að því að hámarka og stækka Carbfix tæknina með því að hanna og reisa föngunarstöð, en verkefnið byggist á reynslu af tilraunavirkjuninni á Nesjavöllum. Verkefnið styður við loftslagsmarkmið Íslands um aukið kolefnishlutleysi, en talið er að verkefnið eitt og sér geti dregið úr losun hellishieðarvirkjunar um 95%.
Sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Íslandi, Clara Ganslandt, sagði:
Virkjunin er fyrsta landbundin föngungar- og bindingarvirkjun sem tekin er í notkun í Evrópu og var eitt af fyrstu styrktarverkefnum sem voru valin af Nýsköpunarsjóðs ESB árið 2020. Þetta sannarlega staðfestir gæði virkjunarinnar og tækifærin sem felast í notkun tækninnar sem hér á sér stað. Silfurberg er frábært dæmi um farsælt og langvarandi samstarf milli Íslands og Evrópusambandsins í loftslagsmálum. - Clara Ganslandt.
Evrópusambandið er staðráðið í því að ná markmiðum Græna sáttmálans og sáttmálans um hreina- iðnaðar- og atvinnustefnu ESB sem leitast við að flýta fyrir orkuskiptum og samdrátti í kolefnislosun, sem og að styðja við nýsköpun sem byggir á hreinni tækni. Evrópa er leiðandi afl þegar kemur að þróun hreinnar tækni, en meira en fimmtungur af þeirri nýsköpun á heimsvísu á sér stað innan Evrópu.
Frekari upplýsingar má finna hér: https://www.carbfix.com/project-silverstone