Sjávarútvegsstjóri ESB heimsækir Ísland

Í síðustu viku tók sendinefnd Evrópusambandsins á móti Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra ESB, í heimsókn til Íslands.

Í heimsókninni átti hann samráðsfund með Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, þar sem þau fóru yfir framvindu viljayfirlýsingar (Memorandum of Understanding) milli ESB og Íslands um aukið samstarf á málefnum hafsins og sjávarútvegsmála. Í samræðunum var einkum horft til samvinnu á norðurslóðum og sameiginlegra áskorana sem þar blasa við, auk fiskveiðistjórnunar með áherslu á verndun fiskistofna og styrkingu kvótasamninga. Þá var einnig fjallað um stjórnun hafsvæða og hvernig megi efla marghliða samstarf innan svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana og styðja við alþjóðlegar aðgerðir um verndun hafsins og sjálfbært blátt hagkerfi.

Viljayfirlýsingin var undirrituð í júlí árið 2025 og miðar að því að efla samstarf um sjálfbærni hafsins, vísindarannsóknir og orkuskipti í sjávarútvegi. Hún byggir á langvarandi tvíhliða samstarfi á sviði fiskveiða sem nær aftur til ársins 1993.

Haft er eftir framkvæmdastjóranum:

„ESB og Ísland eru nánir samstarfsaðilar þegar kemur að Norðaustur-Atlantshafi. Við stöndum frammi fyrir mörgum af sömu áskorunum, allt frá loftslagsbreytingum til álags á fiskistofna og því þurfum við að vinna náið saman. Það er lykilatriði að efla samstarf um víðtækari málefni hafsins, þar á meðal alþjóðlega hafstjórnun og þátttöku okkar í svæðisbundnum fiskveiðistjórnunarstofnunum, til að tryggja sjálfbær og viðnámsþolin hafsvæði í samræmi við markmið Evrópska hafssáttmálans. Það felur í sér að byggja á vísindum, stýra fiskveiðum ábyrgan hátt og veita fólki í greininni meiri fyrirsjáanleika og tækifæri. Viðræður dagsins í dag voru gott skref fram á við og ég er sannfærður um að við getum byggt enn frekar á þessu samstarfi á komandi árum og viljayfirlýsing ESB og Íslands er góður grunnur fyrir það.“

Auk samráðsfundarins átti framkvæmdastjórinn einnig fund með sendiherrum aðildarríkja ESB. Þá ferðaðist hann um Suðurnesin þar sem hann heimsótti Benchmark Genetics, fyrirtæki sem starfar á sviði erfðafræði í fiskeldi og fór til Grindavíkur að sjá áhrif nýlegra eldsumbrota á sjávarþorpið. Auk þess kynnti Kadis sér nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi hjá Sjávarklasanum og hlutverk fjármögnunar frá ESB í stuðningi við greinina. Heimsókninni lauk með fróðlegri kynnisferð til sjávarútvegsfyrirtækisins Brim.