Utanríkisráðherra boðið í hádegisverð með sendiherrum aðildarríkja ESB

Þann 12 desember 2023 var utanríkisráðherra, Bjarna Benediktssyni, boðið í sérstakan hádegisverð með sendiherrum aðildarríkja Evrópusambandsins. Hádegisverðurinn var haldinn í sendiherrabústað Evrópusambandsins við Ægissíðu.

 

Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Lucie Samcová-Hall Allen, bauð utanríkisráðherra og fylgdarliði hans á sérstakan hádegisverðarfund með sendiherrum aðildarríkja Evrópusambandsins sem haldinn var í sendiherrabústað ESB.

Meðal annars ræddu sendiherrarnir við utanríkisráðherra um hið góða samstarf milli Íslands og Evrópusambandsins, og aðildarríkja þess, og þá sérstaklega EES-samstarfið. Utanríkisráðherra fagnaði því nýja samkomulagi sem Framkvæmdastjórn ESB og EES EFTA ríkin hafa náð um fjárframlög og markaðsaðgengi fyrir sjávarafurðir. Þar að auki var 30 ára afmæli EES samningsins rætt sem á sér stað á næsta ári.

Bjarni Benediktsson tók við sem utanríkisráðherra þann 14 október 2023 eftir að hafa verið fjármálaráðherra frá árinu 2017.

EU HOD welcomes Minister for Foreign Affairs

Sendiherra ESB, Lucie Samcová-Hall Allen, býður utanríkisráðherra, Bjarna Benediktssyni, velkominn

 

Ambassador welcoming guests

Sendiherra ESB Heilsar Maríu Mjöll Jónsdóttur, skrifstofustjóra Skrifstofu alþjóðapólitískra málefna hjá Utanríkisráðuneytinu.

 

.

Utanríkisráðherra ræðir við sendiherra ESB og aðildarríkja þess.

 

Minister Benediktsson with Ambassadors

 

Ambassador lucie speaking to a political advisor of the MFA

Á mynd má sjá sendiherra ESB, Lucie Samcová-Hall Allen, ræða við  Hersir Aron Ólafsson, aðstoðarmann Utanríkisráðherra.

 

x

 

Ambassador Lucie speaking to the Minister

 

Meeting table