Við þökkum Þórhildi Davíðsdóttur Söebech fyrir samstarfið!

Þórhildur Davíðsdóttir Söebech lauk starfsnámi sínu við sendinefndina í síðustu viku. Sendinefndin þakkar henni fyrir vel unnin störf.

Þórhildur Davíðsdóttir Söebech lauk störfum sínum í síðustu viku sem starfsnemi við stjórnmála- og upplýsingadeild sendinefndarinnar. 

Meðan á starfsnáminu stóð, sá Þórhildur um verkefni sem sneru m.a. að störfum Alþingis, málum sem varða Ísland og ESB, öryggis- og varnarmálum, umhverfis- og loftslagsmálum, sjávarútvegsmálum, norðurskautsmálum, og mannréttindamálum.

Auk þess, sinnti Þórhildur ræðu- og greinaskrifum, þýðingarvinnu, skýrslugerð, skipulagningu viðburða ásamt því að hafa umsjón með samfélagsmiðlum.

Þórhildur Davíðsdóttir Söebech hefur verið öflugur starfskraftur hjá sendinefndinni undanfarna mánuði og við óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum.