Við þökkum Þórhildi fyrir samstarfið!

Þórhildur Kristbjörnsdóttir lauk starfsnámi sínu við sendinefndina í vikunni. Sendinefndin þakkar henni fyrir vel unnin störf.

Þórhildur Kristbjörnsdóttir lauk störfum sínum í vikunni sem starfsnemi við stjórnmála- og upplýsingadeild sendinefndarinnar. 

Sem starfsnemi sá Þórhildur um verkefni sem sneru m.a. að störfum Alþingis, öryggis- og varnarmálum, umhverfis- og loftslagsmálum, sjávarútvegsmálum, norðurskautsmál o.fl. 

Þar að auki sinnti Þórhildur ræðu- og greinaskrifum, þýðingarvinnu, skipulagningu viðburða ásamt því að hafa umsjón með samfélagsmiðlum.

Þórhildur Kristbjörnsdóttir hefur verið öflugur starfskraftur hjá sendinefndinni undanfarna mánuði og við óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum.