Um helgina ávarpaði Clara Ganslandt sendiherra ESB á Íslandi Vísindavökuna í Laugardal, sem í ár var styrkt af Evrópusambandinu.

Rannís stendur fyrir Vísindavöku ár hvert og er hluti af European Researcher’s Night. Vísindamenn í fjölmörgum borgum um alla Evrópu kynna rannsóknir sínar fyrir almenningi á gagnvirkan og skemmtilegan hátt, sérstaklega handa yngri kynslóðinni.
Í ár fögnum við einnig 30 ára afmæli Marie Skłodowska-Curie áætlunarinnar, sem er ein kjarnaáætlanna ESB, en sú áætlun er styrktaraðili Vísindavöku í ár! Það var dásamlegt að sjá hversu mörg ESB-styrkt rannsóknarverkefni voru á staðnum, og frábært tækifæri fyrir okkur í sendinefndini að hitta og ræða við fólkið sem stendur á bakvið öll þessi verkefni.
Vísindavakan og European Researcher’s night hafa það sameiginlega markmið: að færa vísindin nær almenningi, efla vísindamiðlun og skapa beint samtal milli rannsakenda og samfélagsins. Sendiherra ESB ávarpaði viðburðinn ásamt ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskóla Loga Einarssyni og forstöðumanni Rannís Águsti Ingþórssyni.