Weronika Knowska gengur til liðs við sendinefnd ESB á Íslandi

Það er okkur ánægja að kynna Weroniku Knowska, nýjan diplómat í starfsþjálfun (Junior Professional) hjá fjölmiðla- og upplýsingadeild sendinefndar Evrópusambandsins.

Weronika er pólskur ríkisborgari. Hún er með meistaragráðu í mannréttindum, alþjóðlegum refsirétti og millibilsréttlæti frá Háskólanum í Pristína, auk meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá pólska sjóliðsforingjaskólanum. Hún býr yfir reynslu af rannsóknum og er sérfræðingur á vettvangi borgarasamfélagsins, með áherslu á mannúðaraðstoð og æskulýðsstarf. Bakgrunnur hennar sameinar fræðilegar og hagnýtar rannsóknir auk þátttöku í verkefnum á vegum borgarasamfélagsins sem lúta að mannréttindum, friðaruppbyggingu og valdeflingu ungmenna. Hún talar pólsku, ensku, frönsku, grísku og ítölsku.

Velkomin til starfa, Weronika!