Sendinefnd ESB tekur þátt í #OrangeTheWorld átakinu gegn kynbundnu ofbeldi

Sendinefnd ESB tekur þátt í alþjóðlegri #OrangeTheWorld samfélagsmiðlaherferðinni til að vekja athygli á átaki gegn kynbundnu ofbeldi.

 

25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi. Á þessum degi ár hvert stendur UN Women árlega fyrir alþjóðlegri herferð til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi. Í ár eru #16 dagar af baráttu í gangi undir yfirskriftinni „Unite! Invest to Prevent Violence Against Women and Girls,“ sem lýkur á mannréttindeginum og 75 ára afmælis mannréttindayfirlýsingarinnar.

Við styðjum þessa herferð.

Ein af hverjum þremur konum um allan heim verður fyrir ofbeldi af hálfu maka eða kynferðisofbeldi á lífsleiðinni, óháð uppruna, menningu, þjóðernisuppruna, aldri eða trúarbrögðum. ESB fjárfestir í forvörnum og öryggi, sem eru grunnstoðir í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi sem saman mynda öflugan ramma til að skapa öruggari og réttlátari heim fyrir alla. ESB fjárfestir einnig í ábyrgðar- og uppljóstrunaraðferðum, hjálparlínum, skjólum og þjónustu í Evrópusambandinu og víðar. Þetta sendir þau skilaboð að hvers kyns ofbeldi gegn konum, stúlkum og drengjum sé óviðunandi og verði mætt með ráðstöfunum sem standa vörð um réttindi og reisn alls fólks.

Það er nauðsynlegt að rjúfa þögnina í kringum ofbeldi gegn konum. Einnig er mikilvægt að ræða þá fordóma sem eru til staðar um kynbundið ofbeldi. Kynbundið ofbeldi er ekki einkamál, né er það málefni sem varðar einungis konur, heldur mál sem að allt samfélagið þarf að koma saman til að stoppa. Aðgerðir ESB til að takast á við þetta vandamál stuðla að jafnrétti kynjanna og styrkja kerfi sem að leggur áherslu á að rödd þolenda heyrist og sé virt.

Til að takast á við ofbeldi gegn konum og stúlkum þarf yfirgripsmikla nálgun sem tekur tillit til rót vandans á mismunandi sviðum hvort sem notast er við samfélags-, menningar- eða einstaklings nálgun. Nálgunin þarf að taka mið af mismunandi stöðu kvenna m.t.t. m.a. fatlaðra kvenna, einstaklinga sem tilheyra minnihlutahópum, innflytjenda og hinseginn einstaklinga.

Ofbeldi gegn konum á rætur að rekja til ójöfnuðar, því er nauðsynlegt að taka tillit til rót vandans. Félagsleg viðmið, staðalmyndir og kynjamisrétti valda skaða með því að viðhalda ójöfnuði. Sérhver einstaklingur á rétt á því að njóta mannréttinda til fulls, án nokkurs konar mismununar. ESB leggur áherslu á að afnema staðalímyndir og hvetja til friðar.

Ef þú ert að upplifa eða hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi og þarft aðstoð getur þú hringt í síma 1717 eða 561-1205, eða farið á www.kvennaathvarf.is eða www.stigamot.is

#EndGBV #OrangeTheWorld #NoExcuses #EndGenderStereotypes